Bæði Liverpool og Real Madrid urðu fyrir áfalli í fyrri hálfleiknum í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í Kiev í kvöld.
Mohamed Salah framherji Liverpool meiddist á öxl og fór af velli eftir hálftíma en Adam Lallana kom í hans stað.
Dani Carvahal bakvörður Real Madrid meiddist og fór af velli á 37. mínútu en Nacho kom í hans stað.
Flautað hefur verið til hálfleiks í Kiev og staðan er 0:0.