Mikael skoraði og fór upp um deild

Mikael Anderson í leik með Vendsyssel.
Mikael Anderson í leik með Vendsyssel. Ljósmynd/https://www.vendsysselff.dk/

Mikael Andersen skoraði síðara mark Vendsyssel í 2:1-sigri á Lyngby í dag. Sigurinn tryggði Vendsyssel sæti í efstu deild, en liðið vann tveggja leikja einvígi liðanna samanlagt 3:1.

Mikael skoraði einnig í fyrri leiknum og átti því stóran hluti í að liðið fór upp. Mikael, sem á einn A-landsleik að baki, er á lánssamning hjá Vendsyssel frá Danmerkurmeisturum Midtjylland. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert