Ingibjörg jafnaði metin í uppbótartíma

Ingibjörg Sigurðardóttir
Ingibjörg Sigurðardóttir mbl.is/Kjartan Þorbjörnsson

Ingibjörg Sigurðardóttir bjargaði stigi fyrir Djurgår­d­en sem mætti sænsku meisturunum Linköping á útivelli en liðin gerðu 1:1-jafntefli í efstu deild Svíþjóðar í knattspyrnu í dag.

Natasha Dowie kom heimakonum yfir eftir um klukkutíma leik og stefndi allt í sigur Linköping eða þangað til að Ingibjörg jafnaði metin í uppbótartíma. Hún lék allan leikinn fyrir Djurgår­d­en eins og markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir.

Djurgår­d­en er í 7. sæti með 11 stig eftir átta umferðir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert