Tap í frumraun Iniesta

Andres Iniesta sparkar í knöttinn í Japan í nótt.
Andres Iniesta sparkar í knöttinn í Japan í nótt. AFP

Spænski knattspyrnumaðurinn Andrés Iniesta lék sinn fyrsta leik með japanska liðinu Vissel Kobe í nótt og varð hann að sætta sig við tap í frumrauninni, 3:0 gegn Shonan Bellmare.

Iniesta hóf leikinn á varamannabekknum en kom inn á eftir um klukkutíma leik en þá höfðu gestirnir þá þegar skorað tvö mörk. Honum tókst ekki að blása nýju lífi í liðsfélaga sína en sýndi þó gamalkunna takta á köflum.

Miðjumaðurinn 34 ára átti ágæta marktilraun skömmu fyrir leikslok er hann lét vaða með vinstri fætinum við vítateigslínuna en boltinn sveif rétt framhjá og nær komst hann eða lið Vissel Kobe ekki.

Hann gæti þó spilað sinn fyrsta leik í byrjunarliði í næstu viku þegar lið Kashiwa Reysol kemur í heimsókn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert