Arnór Ingvi útnefndur maður leiksins

Arnór Ingvi fagnar marki í leiknum gegn Kalmar í gær.
Arnór Ingvi fagnar marki í leiknum gegn Kalmar í gær. Ljósmynd/twitter-síða Malmö

Arnór Ingvi Traustason var útnefndur maður leiksins hjá Malmö þegar liðið vann 4:0 sigur gegn Kalmar í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær.

Arnór Ingvi skoraði fyrsta og þriðja mark Malmö og hlaut hann yfirburðakosningu á manni leiksins hjá stuðningsmönnum liðsins en Arnór hlaut 70% atkvæðanna.

Arnór hefur skorað 4 mörk í þeim 16 leikjum sem hann hefur komið við sögu í með Malmö í deildinni á tímabilinu en liðið hefur verið á mikilli siglingu og er komið upp í fjórða sæti eftir brösótta byrjun á tímabilinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert