5.mark Arnórs dýrmætt (myndskeið)

Arnór, annar frá vinstri, fagnar eftir leikinn ásamt félögum sínum.
Arnór, annar frá vinstri, fagnar eftir leikinn ásamt félögum sínum. Ljósmynd/Lilleström

Arnór Smárason tryggði liði sínu Lillestrøm dýrmæt stig í fallbaráttu norsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær með eina markinu í sigri á
Tromsø.

Arnór skoraði markið úr vítaspyrnu sem hann átti sinn þátt í að fiska þegar tíu mínútur voru til leiksloka.

Arnór hefur þar með skorað fimm mörk í sjö leikjum síðan hann kom frá Hammarby í júlí.

Lillestrøm er enn í fallsæti þegar sjö umferðir eru eftir, en aðeins stigi á eftir næstu þremur liðum.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá Arnór fá vítaspyrnuna og skora úr henni með afar öruggum hætti. Vítaspyrnan kemur eftir 3 mínútur í spilaranum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert