Í bann fyrir fögnuðinn

Luciano Spalletti þjálfari Inter.
Luciano Spalletti þjálfari Inter. AFP

Aganefnd ítalska knattspyrnusambandsins hefur úrskurðað Luciano Spalletti þjálfara Inter í eins leiks bann og fær hann ekki að stjórna liði sínu af bekknum þegar það mætir Fiorentina í ítölsku A-deildinni í kvöld.

Spalletti var rekinn upp í stúku en hann missti sig alveg þegar króatíski landsliðsmaðurinn Marcelo Brozovic skoraði sigurmarkið gegn Fiorentina í uppbótartíma á laugardaginn.

Spalletti fagnaði markinu með því að öskra í myndavélina og að mati fjórða dómara leiksins fór fögnuður hans yfir strikið og þótti hann sýna óprúðmannlega framkomu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert