Grannþjóðirnar Brasilía og Argentína mættust í vináttuleik í fótbolta í Jeddah í Sádi-Arabíu í kvöld og lauk leik með 1:0-sigri Brasilíu. Varnarmaðurinn Miranda skoraði sigurmarkið í uppbótartíma eftir sendingu Neymar.
Nágrannarnir Belgía og Holland gerðu 1:1-jafntefli í Brussel. Dries Mertens kom Belgíu yfir strax á fimmtu mínútu en Arnaut Groeneveld jafnaði á 27. mínútu og þar við sat.
Danir höfðu betur gegn Austurríki í Herning, 2:0. Lukas Lerager og Martin Braithwaite skoruðu mörk Dana. Í Solna í Svíþjóð mættust heimamenn og Slóvakía og skildu þau jöfn, 1:1. John Guidetti skoraði mark Svía í seinni hálfleik áður en Albert Rusnák jafnaði undir lokin.