Tottenham þarf ekki að glíma við Suárez

Jordi Alba og Lionel Messi fagna með Luis Suárez um …
Jordi Alba og Lionel Messi fagna með Luis Suárez um helgina. AFP

Barcelona verður án Luis Suárez þegar liðið tekur á móti Tottenham í lokaumferð riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu annað kvöld.

Suárez meiddist í 4:0-sigri Börsunga gegn Espanyol í spænsku 1. deildinni um helgina, en hann skoraði einnig í leiknum. Eru meiðslin í hné og greinir Sky frá því að hann verði frá næstu tvær vikurnar.

Barcelona hefur þegar tryggt sæti sitt upp úr B-riðli keppninnar, en Tottenham og Inter berjast um að fylgja þeim áfram. Vinni Tottenham er liðið öruggt áfram á meðan Inter, sem mætir PSV, þarf að treysta á að lærisveinar Mauricio Pochettino misstígi sig á Nývangi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert