Dregið í Meistaradeildinni í dag

Real Madrid er ríkjandi Evrópumeistari.
Real Madrid er ríkjandi Evrópumeistari. AFP

Í dag verður dregið til 16-liða úrslitanna í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu og eins og venjulega ríkir mikil spenna fyrir drættinum.

Lið frá sama landi geta ekki mæst og heldur ekki lið sem voru í sama riðli í riðlakeppninni. Drátturinn hefst klukkan 11 og verður fylgst með honum í beinni textalýsingu hér á mbl.is.

Sigurvegarar riðlanna:

Barcelona
Bayern München
Dortmund
Juventus
Manchester City
Paris SG
Porto
Real Madrid

Liðin sem urðu í öðru sæti:

Ajax
Atlético Madrid
Liverpool
Lyon
Manchester United
Roma
Schalke
Tottenham

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert