Sex marka toppslagur

Thomas Müller fagnar þriðja marki Bayern.
Thomas Müller fagnar þriðja marki Bayern. AFP

Bayern München og Leipzig skildu jöfn, 3:3, í toppslag þýsku 1. deildarinnar í fótbolta á heimavelli fyrrnefnda liðsins í dag.

Christopher Nkunku kom Leipzig yfir á 19. mínútu en Jamal Musiala og Thomas Müller sneru taflinu við með tveimur mörkum eftir rúmlega hálftíma leik. Justin Kluivert jafnaði í 2:2 á 36. mínútu og þannig var staðan í hálfleik.

Emil Forsberg kom Leipzig yfir á 48. mínútu en Thomas Müller átti lokaorðið á 75. mínútu er hann jafnaði í 3:3 og þar við sat. Bayern er í toppsætinu með 23 stig og Leipzig í öðru sæti með 21 stig.

Dortmund kemur þar á eftir með 19 stig, en Dortmund þurfti að sætta sig við 1:1-jafntefli gegn Frankfurt. Daichi Kamada kom Frankfurt yfir á 9. mínútu en Giovanni Reyna jafnaði á 56. mínútu og þar við sat. Leverkusen getur skotist upp í annað sæti og 22 stig með sigri á Schalke á morgun.

Leikmenn Dortmund voru súrir og svekktir í leikslok.
Leikmenn Dortmund voru súrir og svekktir í leikslok. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert