Spilaði sinn fyrsta leik á Ítalíu

Lára Kristín Pedersen í leik KR síðasta sumar.
Lára Kristín Pedersen í leik KR síðasta sumar. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Knatt­spyrnu­kon­an Lára Krist­ín Peder­sen spilaði sinn fyrsta leik með ítalska A-deildarfélaginu Napoli í dag er liðið mætti Sassuolo.

Lára gekk í raðir Napoli fyrr í mánuðinum og er nú önnur tveggja Íslendinga í liðinu en Guðný Árnadóttir samdi við félagið í byrjun árs, er þar að láni frá AC Milan. Þær voru báðar í byrjunarliðinu en Lára var tekin af velli eftir rúmlega klukkutíma leik og Guðný spilaði allan tímann.

Napoli tapaði leiknum 1:0 og er í nokkrum vandræðum í efstu deildinni. Liðið er í 11. og næstsíðasta sæti deildarinnar með fjögur stig eftir 14 leiki.

Miðju­kon­an, sem er 26 ára göm­ul, er upp­al­in hjá Aft­ur­eld­ingu í Mos­fells­bæ en hún lék með KR í úr­vals­deild­inni á síðustu leiktíð. Lára á að baki 167 leiki í efstu deild með Aft­ur­eld­ingu, Stjörn­unni, Þór/​KA og KR þar sem hún hef­ur skorað fimmtán mörk. Þá á hún að baki tvo A-lands­leiki fyr­ir Ísland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert