Sverrir og félagar lögðu meistarana

Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn í hjarta varnarinnar.
Sverrir Ingi Ingason lék allan leikinn í hjarta varnarinnar. AFP

Andrija Zivkovic skoraði tvívegis fyrir PAOK þegar liðið lagði meistaralið Olympiacos í úrslitariðli grísku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu á heimavelli í dag.

Leiknum lauk með 2:0-sigri PAOK en Sverrir Ingi lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá POAK.

Ögmundur Kristinsson var ónotaður varamaður hjá Olympiacos en PAOK er í þriðja sæti úrslitariðilsins með 54 stig, þremur stigum minna en Aris sem er í öðru sætinu.

Olympiacos er með 76 stig í efsta sætinu en liðið tryggði sér meistaratitilinn um síðustu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert