Varði markið í mögnuðum sigri

Elías Rafn Ólafsson stóð vaktina vel í marki Midtjylland.
Elías Rafn Ólafsson stóð vaktina vel í marki Midtjylland. Ljósmynd/Szilvia Micheller

Elías Rafn Ólafsson varði mark Midtjylland er liðið vann magnaðan 1:0-útisigur á FC Kaupmannahöfn í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.

Evander fékk beint rautt spjald í liði Midtjylland á 27. mínútu en þrátt fyrir það kom Júnior Brumado liðinu yfir á 47. mínútu. Kaupmannahafnarliðið reyndi hvað það gat til að skora en Elías og varmarmenn hans stóðu vaktina vel.

Ísak Bergmann Jóhannesson kom inn á sem varamaður á 68. mínútu hjá FCK en Andri Fannar Baldursson var allan tímann á bekknum. Midtjylland fór með sigrinum upp fyrir FCK og upp í toppsætið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert