Jónatan hetjan í bikarsigri

Jónatan Ingi Jónsson skoraði sigurmark Sogndal.
Jónatan Ingi Jónsson skoraði sigurmark Sogndal. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Jónatan Ingi Jónsson reyndist hetja Sogndal þegar hann skoraði sigurmark liðsins í framlengingu í 2:1-sigri á D-deildar liði Lysekloster í 64-liða úrslitum norsku bikarkeppninnar í kvöld.

Sogndal leikur í B-deild og náði forystunni eftir aðeins tveggja mínútna leik.

Heimamenn í Lysekloster jöfnuðu hins vegar metin aðeins fjórum mínútum síðar.

Jónatan Ingi kom inn á sem varamaður í hálfleik og Valdimar Þór Ingimundarson á 79. mínútu.

Sigurmarkið skoraði Jónatan Ingi á 110. mínútu og tryggði þannig Sogndal farseðilinn í 32-liða úrslit bikarkeppninnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert