Hollenski knattspyrnustjórinn John van't Schip lætur af störfum hjá stórliði Ajax þarlendis eftir tímabilið.
Van't Schip tók við Ajax eftir nokkrar umferðir en fyrir það var liðið í fallsæti undir sjórn Maurice Steijn. Hefur hann náð að rétta úr kútnum en Ajax liðið er nú í fimmta sæti deildarinnar.
Undanfarnar vikur hafa þó verið Ajax erfiðar en landsliðsmaðurinn Kristian Nökkvi Hlynsson er fastamaður í liðinu.
Aðstoðarþjálfari Liverpool, Pep Lijnders, hefur verið orðaður við stöðu stjóra Ajax undanfarna daga en hann mun yfirgefa Liverpool í sumar ásamt Jürgen Klopp.