Albert í liði umferðarinnar

Albert Guðmundsson í baráttu við Filip Kostic hjá Juventus í …
Albert Guðmundsson í baráttu við Filip Kostic hjá Juventus í A-deildinni. AFP/Marco Bertorello

Albert Guðmundsson, landsliðsmaður í knattspyrnu, er í úrvalsliði umferðarinnar í ítölsku A-deildinni eftir viðureign Fiorentina og Genoa í gær.

Það var lokaleikurinn í 32. umferð deildarinnar og Albert er í ellefu manna úrvalsliðinu sem deildin sjálf velur.

Hann skoraði mark Genoa í jafntefli, 1:1, og það var þrettánda mark Alberts í deildinni í vetur en hann er nú þriðji markahæsti leikmaður deildarinnar, á eftir Lautaro Martínez sem hefur skorað 23 mörk fyrir Inter Mílanó og Dusan Vlahovic sem hefur skorað 15 mörk fyrir Juventus.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert