Atli Sveinn kemur Valsmönnum í 2:0 gegn Fylki

Valsmenn eru komnir í 2:0 gegn Fylki í úrvalsdeild karla í knattspyrnu að Hlíðarenda. Atli Sveinn Þórarinsson skoraði annað markið með skalla eftir hornspyrnu Guðmundar Benediktssonar strax á annarri mínútu síðari hálfleiks. Garðar B. Gunnlaugsson gerði fyrra markið, einnig með skalla eftir hornspyrnu Guðmundar, á 35. mínútu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert