Red Sox sigra í úrvalsdeildinni í bandaríska hafnaboltanum

Leikmaður Red Sox, Mike Lowell, hampar verðlaunagripnum eftir sigurinn í …
Leikmaður Red Sox, Mike Lowell, hampar verðlaunagripnum eftir sigurinn í gærkvöldi. Reuters

Red Sox frá Boston tryggðu sér í gærkvöldi meistaratitilinn í bandaríska hafnaboltanum (World Series) með sigri á Colorado Rockies. Þetta er í annað sinn á fjórum árum sem Red Sox landa meistaratitlinum. Sigurinn 2004 markaði tímamót, því að þá hafði liðið ekki unnið hann í 86 ár.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert