Bjarni Fritzson: „Stuðningsmaður Íslands númer eitt“

Bjarni Fritzson fylgist með einum af leikjum Íslands í handknattleikskeppni …
Bjarni Fritzson fylgist með einum af leikjum Íslands í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna. Bjarni hefur ekki verið kallaður inn í íslenska leikmannahópinn en er til taks meiðist einhver. Brynjar Gauti

„É þoli ekki að horfa á handbolta ef ég er ekki að spila sjálfur. Þetta hefur því verið ansi erfitt á köflum og sérstaklega þegar við erum að jafna á lokasekúndunum í tveimur leikjum í röð. Þegar maður er vanur því að spila handbolta þá er það gríðarlega erfitt að sitja og geta ekki haft áhrif,“ sagði handknattleiksmaðurinn Bjarni Fritszon við 24 stundir í Peking en hann er hinn „leyndardómsfulli“ 15. leikmaður Íslands sem fær ekki að vera með.

Bjarni leikur með St. Raphael í Frakklandi en hann er 28 ára gamall sálfræðingur sem hlustar á Sigur Rós og hipphopptónlist jöfnum höndum. Bjarni er í þeirri einkennilegu stöðu að vera fyrir utan leikmannahóp íslenska landsliðsins í Peking en hann hefur verið til taks ef eitthvað kæmi upp á í leikmannahópnum. Á morgun, miðvikudag, er síðasti dagurinn þar sem liðin geta gert breytingar á leikmannahópnum og er allt eins líklegt að Bjarni fari frá Peking án þess að hafa leikið eina einustu mínútu.

Tek öllu með jafnaðargeði

„Ég er með í öllu sem liðið gerir fyrir utan það að ég má ekki sofa í ólympíuþorpinu. Á hverju kvöldi þarf ég að fara á SAS-hótelið og gista þar. Og strax að morgni er ég mættur í ólympíuþorpið og tek þátt í næstum því öllu sem liðið gerir. Ég tek þessu öllu saman með jafnaðargeði og ég hef ekki hugmynd um hvort ég fæ að vera áfram á hótelinu þegar fresturinn rennur út á miðvikudag,“ sagði Bjarni en hann er sálfræðingur að mennt og er því með faglegu hliðina á hreinu þegar kemur því að „tækla“ kraftmikinn húmor landsliðshópsins þar sem enginn fær grið. Ítarlegt viðtal er við Bjarna í 24 stundum í dag.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert