Neymar: Hefði getað verið í hjólastól

Brasilíska knattspyrnustjarnan Neymar brast í grát þegar hann sagði fjölmiðlamönnum eftir stórtap brasilíska liðsins gegn Þjóðverjum 7:1,  að hann hefði getað lamast er Kólumbíumaðurinn Juan Zuniga rak hné sitt í bak hans og batt þar með endi á þáttöku hans á heimsmeistarakeppninni í Brasilíu. 

Hryggjarliður Brasilíumannsins brákaðist og mænan hefði því getað skaddast við höggið. 

„Það munaði einungis tveimur sentímetrum að ég væri í hjólastól í dag. Guð blessaði mig,“ sagði Neymar

Zuniga bað Neymar afsökunar og hringdi í hann daginn eftir en Neymar er þó langt frá því að vera sáttur við Kólumbíumanninn.

„Ég hata hann ekki. Ég ber engan kala til hans. Ég ber í raun engar tilfinningar til hans,“ sagði Neymar. 

„Ég get ekki sagt að hann hafi gert þetta eingöngu til að meiða mig. Ég veit ekki hvað hann var að hugsa þegar hann gerði þetta, en allir sem skilja fótbolta sjá að þetta var ekki eðlileg tækling,“ sagði dramatískur Neymar.

Neymar sárkvalinn eftir atvikið.
Neymar sárkvalinn eftir atvikið. AFP
Umrætt atvik.
Umrætt atvik. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert