Norræna skólahlaupið á föstudaginn

Guðni Valur Guðnason, kringlukastari, mætir á Norræna skólahlaupið.
Guðni Valur Guðnason, kringlukastari, mætir á Norræna skólahlaupið.

Norræna skólahlaupið verður sett í Grunnskóla Sandgerðis föstudaginn 2. september 2016 klukkan 10.00. Norræna skólahlaupið er árlegt verkefni þar sem öllum grunnskólum á Norðurlöndunum býðst að taka þátt. 

Hlaupið var fyrst haldið árið 1984 og verður haldið í 33. skipti í ár. Íþrótta- og ólympíusamband Íslands sér um framkvæmd verkefnisins á Íslandi. Verkefnið nýtur stuðnings ÍSÍ, Mjólkursamsölunnar og Evrópuráðsins, og er í samvinnu við Íþrótta- og heilsufræðifélag Íslands. Nú í ár tengist verkefnið einnig Íþróttaviku Evrópu og verða þrír skólar sem ljúka hlaupinu fyrir 30. september 2016 dregnir út til verðlauna.

Markmiðið með Norræna skólahlaupinu er að hvetja nemendur til að hreyfa sig reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Á síðasta ári tóku rúmlega 15.000 grunnskólanemendur frá um 63 skólum á Íslandi þátt í hlaupinu og hlupu til samans um 40 hringi í kringum landið, en hægt er að velja um þrjár vegalengdir 2,5, 5 og 10 kílómetra. Árið 2015 tengdist verkefnið í fyrsta sinn Íþróttaviku Evrópu, sem er verkefni á vegum Evrópuráðsins.

Af því tilefni var bryddað upp á þeirri nýjung að draga út þrjá skóla sem tóku þátt í Norræna skólahlaupinu og luku hlaupinu fyrir 30. september 2015. Verðlaunin hlutu Grunnskóli Hólmavíkur, Seljaskóli í Reykjavík og Víðistaðaskóli í Hafnarfirði, en til mikils var að vinna því hver þessara þriggja skóla fékk 100.000 króna inneign í Altis. Altis selur vörur til íþróttaiðkunar sem nýtast nemendum á skólalóðinni eða í íþróttahúsinu.

Tveir afreksíþróttamenn, Ólympíufarinn Guðni Valur Guðnason og Ari Bragi Kárason Íslandsmethafi í 100 m hlaupi, ásamt Blossa, lukkudýri Smáþjóðaleikanna 2015, ætla að vera í Grunnskóla Sandgerðis á föstudag og hvetja krakkana áfram í hlaupinu. Mjólkursamsalan, sem hefur styrkt hlaupið frá upphafi, mun gefa krökkunum ískalda mjólk í lok hlaupsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert