Anton Sveinn í öðru sæti

Anton Sveinn McKee.
Anton Sveinn McKee. mbl.is/Golli

Anton Sveinn McKee hafnaði í öðru sæti í 180 metra (200 jarda) bringusundi á NCAA-háskólamótinu í Bandaríkjunum.

Anton Sveinn synti vegalengdina á 1.51,22 mínútum og setti nýtt skólamet og bætti um leið sinn besta tíma. Þetta er besti árangur íslensks sundmanns í einstaklingsgrein í Bandaríkjunum og Anton Sveinn náði níunda besta tíma frá upphafi í Bandaríkjunum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert