Jón vann til bronsverðlauna á HM

Jón S. Ólafsson.
Jón S. Ólafsson. Ljósmynd/FRÍ

Jón S. Ólafsson vann til bronsverðlauna í stangarstökki í flokki karla 60–64 ára á heimsmeistaramóti öldunga innanhúss, sem haldið var í Daegu í Suður-Kóreu á dögunum.

Jón stökk yfir 3,00 metra. Þetta er í annað sinn á innan við ári sem Jón vinnur til verðlauna á heimsmeistaramóti því á heimsmeistaramóti öldunga utanhúss sem haldið var í Perth í Ástralíu sl. sumar vann hann einnig til bronsverðlauna, með stökki yfir 3,20 metra. Þetta kemur fram á vef Frjálsíþróttasambands Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert