Kvennalið Aftureldingar í blaki hefur fengið liðsstyrk fyrir baráttuna á næsta keppnistímabili en Mosfellingar hafa krækt í Mikayla Derochie, 22 ára uppspilara.
Derochie er frá Kanada en hefur búið í Bandaríkjunum frá 10 ára aldri og kemur frá Davidson-háskólanum í Norður-Karólínu. Hún er annar leikmaðurinn sem Afturelding fær í sumar en María Rún Karlsdóttir kom til liðs við félagið frá Þrótti í Neskaupstað.