Anna og Raj unnu síðasta mótið

Raj K. Bonifacius og Anna Soffía Grönholm.
Raj K. Bonifacius og Anna Soffía Grönholm. Ljósmynd/Tennissambandið

Fjórða og jafnframt síðasta stórmót Tennissambands Íslands á árinu kláraðist í Tennishöllinni í Kópavogi í dag. Anna Soffía Grön­holm úr Tenn­is­fé­lagi Kópa­vogs og Raj K. Bonifacius úr tenn­is­deild Vík­ings stóðu uppi sem sig­ur­veg­ar­ar í einliðal­eik. 

Alls voru 82 keppendur á mótinu og var keppt í míní-tennis, stelpna- og strákaflokki U10 / U12 / U14   og opnum flokkum karla og kvenna.

Úrslit í kvenna­flokki:

1.sæti  Anna Soffía Grönholm, TFK
2.sæti  Sofía Sóley Jónasdóttir TFK
3.-4.sæti  Rán Christer og Selma Dagmar Óskarsdóttir, TFK

Úrslit í karlaflokki:

1.sæti  Raj K. Bonifacius, Víkingi
2.sæti  Björgvin Atli Júlíusson, Víkingi
3.sæti  Stefán Reynir Pálsson, TFG

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert