Albert, Harpa og Þórður verðlaunuð á Ísafirði

Albert Jónsson.
Albert Jónsson.

Sunnudaginn 21. janúar var útnefndur Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017, efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017 ásamt því að veitt voru sérstök hvatningarverðlaun fyrir gott og gjöfult starf til íþróttamála í sveitarfélaginu.

Íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017 er Albert Jónsson úr Skíðafélagi Ísfirðinga.

„Albert er afburða íþróttamaður sem leggur mikið á sig fyrir íþrótt sína og uppsker í samræmi við það.  Í skíðasamfélaginu er hann orðlagður fyrir einstaka samviskusemi og dugnað við æfingar. Hann setur sér háleit og krefjandi markmið og vinnur skipulega að því að ná þeim. Þessi eljusemi hefur nú skilað honum sæti í A-landsliði Íslands í skíðagöngu og á möguleika á að keppa fyrir Íslands hönd á Ólympíuleikunum í febrúar.  Áhugi Alberts og æfingagleði smitar út frá sér og bætir alla í kringum hann. Hann er óþreytandi við að aðstoða og hvetja áfram liðsfélaga sína í Skíðafélagi Ísfirðinga og reyndar skíðagöngufólk um allt land,“ segir í umsögn um Albert.

Þórður Gunnar Hafþórsson.
Þórður Gunnar Hafþórsson.

Þórður Gunnar efnilegastur

Efnilegasti íþróttamaður Ísafjarðarbæjar 2017 var útnefndur Þórður Gunnar Hafþórsson, knattspyrnumaður hjá Vestra.

„Þórður er duglegur og hæfileikaríkur leikmaður sem átti fast sæti í meistaraflokksliði Vestra í sumar aðeins 15 ára gamall. Hann var valinn í  úrtakshóp fyrir U17 ára landslið og síðar í lokahóp U17 ára landsliðs Íslands. Þórður fór á árinu með U17 ára landsliðinu á Norðurlandamót þar sem hann spilaði sína fyrstu landsleiki og síðar í undankeppni EM þar sem hann spilaði einnig landsleiki. Í desember var hann enn valinn í U17 ára hópinn. Ótrúlegur árangur þar sem samkeppnin er gríðarlega mikil. Þórður frá frábær fyrirmynd yngri iðkenda í leik og starfi,“ segir í umsögn um Þórð.

Harpa Grímsdóttir fær hvatningarverðlaunin.
Harpa Grímsdóttir fær hvatningarverðlaunin.

Harpa fékk Hvatningarverðlaun

Hörpu Grímsdóttur voru afhent Hvatningarverðlaun fyrir gott og öflugt starf í þágu Blakdeildar Vestra og áður Blakfélaginu Skelli.

„Harpa hefur sinnt blakstarfinu af lífi og sál síðan hún flutti til Ísafjarðar fyrir 13 árum. Á þeim tíma hefur starfsemi félagsins vaxið og dafnað frá því að vera með tvö kvennalið í öldungablaki í að vera með öflugt barna- og unglingastarf, lið í meistaraflokki bæði karla og kvenna í 1. deild Íslandsmóts ásamt heldri iðkendum í öldungablaki. Á síðustu árum hafa yngri flokkar félagsins unnið Íslandsmeistaratitla í sínum aldursflokkum og á síðasta ári varð meistaraflokkur karla deildarmeistarar í 1. deild og komust í undanúrslit í bikarkeppninni. Harpa komið að starfinu frá flestum hliðum, hefur meðal annars þjálfað ef ekki hefur fengist þjálfari. Er einnig mjög öflugur leikmaður og hefur endurtekið verið kjörinn besti leikmaður meistaraflokks kvenna. Harpa er nú formaður blakdeildar Vestra,“ segir í umsögn um Hörpu.

Ísafjarðarbær bauð til hófs þar sem útnefningar voru tilkynntar og viðurkenningar afhentar. Rúmlega 90 manns mættu og nutu kaffiveitinga í boði bæjarins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert