HK komið í undanúrslit

HK er í góðri stöðu.
HK er í góðri stöðu. Ljósmynd/Þórir Ó. Tryggvason

HK er komið í undanúrslit Íslands­móts kvenna í blaki eftir 3:0-sigur á Völsungi á Húsavík í kvöld. HK vann báða leikina í einvíginu og fer því áfram, 2:0.

HK vann nokkuð jafna fyrstu hrinu, 25:19, og var með yfirburði í annarri hrinu og fór hún 25:11. HK innsiglaði svo sigurinn með 25:20-sigri í þriðju hrinu. 

Hjördís Eiríksdóttir var stigahæst hjá HK með 13 stig og þær Hanna María Friðriksdóttir og Elsa Sæný Valgeirsdóttir gerðu níu stig. Arna Védís Bjarnadóttir var stigahæst hjá Völsungi með sjö stig. 

HK mætir deildarmeisturum Þróttar frá Neskaupstað í undanúrslitunum en þau fara fram eftir páska.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert