Komst í þriðju umferð í Bakú

HM fararnir þrír, f.v. Jón Þór, Egill Blöndal og Sveinbjörn …
HM fararnir þrír, f.v. Jón Þór, Egill Blöndal og Sveinbjörn Iura. Ljósmynd/Júdósamband Íslands

Sveinbjörn Iura komst í dag í þriðju umferð í 81 kg flokki á heimsmeistaramótinu í júdó sem fram fer þessa dagana í Bakú í Aserbaídsjan. 

Eftir að hafa setið yfir í fyrstu umferð keppninnar mætti Sveinbjörn Cedrick Kalonga. 

Cedrick fékk snemma í glímunni refsistig fyrir stöðuga vörn en skoraði þó skömmu síðar wazaari þegar hann sótti óvænt í vinstra seoinage sem Sveinbirni tókst ekki að verjast.

Eftir það tók Sveinbjörn alla stjórn á vellinum og sótti stíft en náði þó ekki að skora. Ekki munaði samt miklu í eitt skiptið þegar Sveinbjörn tók tai-otoshi á Cedrick sem féll á hliðina en ekkert var gefið fyrir það.

Sveinbjörn átti einnig ágætistækifæri í gólfglímunni og ekki langt frá því að komast í fastatak en Cedrick slapp í öll skiptin með skrekkinn.

Cedrick var orðinn þreyttur og ekki leið á löngu þar til hann fékk næsta refsistig og nú fyrir ólögleg handtök og skömmu áður en tíminn rann út fékk hann sitt þriðja refsistig fyrir gervisókn “false attack” og var þar með búinn að tapa glímunni.

Sveinbjörn féll úr keppni er hann tapaði næstu viðureign í þriðju umferð en þar mætti hann ofjarli sínum er hann lenti á móti efsta manni heimslistans, Saeid Mollaei (IRI) sem stóð síðar uppi sem sigurvegari í flokknum. 

Þessi árangur Sveinbjörns, að komast í þriðju umferð á HM mun færa hann töluvert ofar á heimslistann en nýr listi verður gefinn út að loknu móti.

Egill Blöndal keppir á morgun í -90 kg flokki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert