Ríkjandi meistarar komust áfram

Roger Federer.
Roger Federer. AFP

Svisslendingurinn Roger Federer er kominn í þriðju umferð á opna ástralska meistaramótinu í tennis eftir sigur á Bretanum Dan Evans.

Federer, sem á titil að verja, vann Evans í þremur settum 7:6, 7:6 og 6:3 og er kominn í þriðju umferðina 20. árið í röð á þessu móti. Federer hefur unnið 20 risamót á ferli sínum og stefnir að því að vinna opna ástralska meistaramótið í sjöunda sinn.

Hin danska Caroline Wozniacki, sem á titil að verja í kvennaflokki, er einnig komin áfram í þriðju umferðina eftir sigur gegn Johannu Larsson frá Svíþjóð í tveimur settum 6:1 og 6:3.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert