Annar sigur Bjarnarins kom í Laugardal

Leikmenn Bjarnarins fagna marki í kvöld.
Leikmenn Bjarnarins fagna marki í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Björninn vann sinn annan sigur á leiktíðinni í Hertz-deild karla í íshokkíi er liðið mætti SR í Skautahöllinni í Laugardal í kvöld. Í jöfnum leik hafði Björninn betur, 2:1. 

Edmunds Induss kom Birninum yfir á 19. mínútu og reyndist það eina mark fyrsta leikhlutans. Brynjar Bergmann tvöfaldaði svo forskotið snemma í öðrum leikhluta. 

SR-menn gáfust ekki upp því Petr Kubos minnkaði muninn á 29. mínútu. Það reyndist síðasta mark leiksins, því ekkert var skorað í þriðja og síðasta leikhlutanum. 

Með sigrinum fór Björninn upp í 11 stig, en liðið er enn í þriðja og neðsta sæti deildarinnar. SA er á toppnum með 20 stig og SR er í öðru sæti með 17 stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert