Tíu keppa fyrir Íslands hönd í Svíþjóð

Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Guðni Valur Guðnason verða á meðal …
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir og Guðni Valur Guðnason verða á meðal keppenda í Karlstad. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Tíu Íslendingar verða í eldlínunni á Norðurlandameistaramótinu í frjálsum íþróttum innanhúss sem fram fer í Karlstad í Svíþjóð sunnudaginn 12. febrúar.

Ísland teflir fram sameiginlegu liði með Danmörku en lið frá Finnlandi, Noregi og Svíþjóð taka einnig þátt í mótinu.

Alls keppa fjórar konur fyrir Íslands hönd á mótinu og sex karlar og þá eru þeir Guðmundur Hólmar Jónsson og Hermann Þór Haraldsson þjálfarar liðanna.

Landslið kvenna:

  • Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir (ÍR) / 60 m, 200 m
  • Irma Gunnarsdóttir (FH) / langstökk
  • Hafdís Sigurðardóttir (UFA) / langstökk
  • Vigdís Jónsdóttir (ÍR) / lóðkast

Landslið karla:

  • Kolbeinn Höður Gunnarsson (FH) / 60 m, 200 m
  • Ísak Óli Traustason (UMSS) / 60 m grind.
  • Daníel Ingi Egilsson (FH) / þrístökk
  • Elías Óli Hilmarsson (FH) / hástökk
  • Guðni Valur Guðnason (ÍR) / kúluvarp
  • Sindri Lárusson (UFA) / kúluvarp
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert