Ólafíu ekki boðið til Illinois

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. AFP

Atvinnukylfingnum Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur var ekki boðið sérstaklega að taka þátt í KPMG-risamótinu í golfi sem hefst á fimmtudaginn kemur, eins og sagt var í fréttum fyrr í dag.

Mbl.is hefur fengið upplýsingar um að Ólafía vann sér inn keppnisréttinn á mótinu með árangri sínum á Walmart-mótinu sem lauk í Arkansas í dag og þurfti því ekki sérstakt boð.

Að því loknu er hún með nægilega mörg stig í LPGA-mótaröðinni í ár til að vera með keppnisrétt á KPMG-mótinu sem fram fer í Olympia Fields í Illinois og hefst fimmtudaginn 29. júní en lýkur sunnudaginn 2. júlí.

Þar með verður hún fyrsti Íslendingurinn sem tekur þátt í einu af risamótunum í golfi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert