Stefán Már Stefánsson, kylfingur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, fór holu í höggi á Íslandsmótinu í höggleik. Stefán sló draumahöggið á sjöttu holu Hvaleyrarvallar, par 3 holu sem var 150 metra löng í dag.
Stefán fylgdi því eftir með fugli á sjöundu holu og lék því á þremur höggum undir pari á tveimur holum. Hann leikur á tveimur höggum undir pari í dag og á þremur höggum yfir pari í heildina. Því er ljóst að Stefán Már kemst í gegnum niðurskurð mótsins.
Mbl.is óskar Stefáni Má til hamingju með draumahöggið.