13 ára efst eftir fyrsta dag

Kinga Korpak er aðeins 13 ára gömul.
Kinga Korpak er aðeins 13 ára gömul. Ljósmynd/GSÍ

Hin 13 ára gamla Kinga Korpak er í efsta sæti í kvennaflokki í Hvaleyrarbikarnum á Eimskipsmótaröðinni í golfi eftir fyrsta hring í dag. Kinga lék gríðarlega öruggt golf og fékk par á öllum holunum nema tveimur, þar sem hún fékk skolla. Hún lék hringinn á 73 höggum eða tveimur höggum yfir pari. 

Karen Guðnadóttir er í öðru sæti á þremur höggum yfir pari og Anna Sólveig Gísladóttir er í þriðja sæti á fjórum höggum yfir pari. Keppni á mótinu heldur áfram á morgun og alls eru leiknir þrír hringir. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert