Valdís Þóra náði sér ekki á strik

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. mbl.is/Styrmir Kári

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, náði sér ekki á strik á fyrsta hringnum á Costa del Sol Open-mótinu í Andalúsíu á Spáni sem er hluti af Evrópumótaröðinni í golfi.

Valdís Þóra var að ljúka keppni í dag. Hún lék hringinn á 78 höggum eða sex höggum yfir pari og er á meðal neðstu keppenda eftir þennan fyrsta hring.

Það gekk illa hjá Skagakonunni á síðari níu holunum sem hún lék á fimm höggum yfir pari. Valdís fékk átta pör á hringnum, tvo fugla, sex skolla og einn skramba.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert