Ragnhildur bar sigur úr býtum

Ragnhildur Kristinsdóttir
Ragnhildur Kristinsdóttir Ljósmynd/Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Kylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir byrjar háskólaferilinn með Eastern Kentucky keppnisliðinu með miklum látum, en hún sigraði á Pinehurst Intercollegiate-mótinu í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum.

Ragnhildur, sem er úr Golfklúbbi Reykjavíkur, lék hringina þrjá á +14 samtals (73-82-75) eða 230 höggum. Ragnhildur var þremur höggum betri en liðsfélagi hennar, Elsa Moberly, sem varð önnur á +17.

Eva Björnsdóttir, sem er einnig á sínu fyrsta ári með ULM háskólanum, varð í 19. sæti á +33 samtals (87-79-83) 249 höggum. Eva er líkt og Ragnhildur úr GR. Særós Óskarsdóttir sem leikur með Boston University varð í 38. sæti á +62 samtals (94-97-87) 278 höggum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert