Ólafía Þórunn í eldlínunni í Kaliforníu

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. Ljósmynd/LPGA

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, atvinnukylfingur úr GR, verður á meðal keppenda á Kia Classic mótinu sem hefst í Kaliforníu í Bandaríkjunum á fimmtudaginn en mótið er hluti af LPGA-mótaröðinni.

Ólafíu Þórunni tókst ekki að komast í gegnum niðurskurðinn á Bank of Hope Found­ers Cup í Phoen­ix um síðustu helgi en vonandi tekst henni betur upp í Kaliforníu.

Flestir af bestu kvenkylfingum heims eru skráðir til leiks á Kia Classic mótinu og þeirra á meðal er hin kínverska Shanshan Feng sem er í efsta sæti á heimslistanum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert