Ólafía Þórunn Kristinsdóttir náði sér ekki á strik á fyrsta hringnum á Mediheal-meistaramótinu í golfi sem hófst í gærkvöld í San Francisco á vesturströnd Bandaríkjanna en það er liður í LPGA-mótaröðinni.
Ólafía Þórunn lék hringinn á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari og er í 120.-129. sæti. Hún þarf því að bæta sig ansi mikið í kvöld ef henni á að takast að komast í gegnum niðurskurðinn sem er miðaður við eitt högg yfir pari eins og staðan er núna.
Ólafía fékk skramba á annarri holunni, sem hún lék á sex höggum, og í kjölfarið fylgdu tveir skollar og hún var komin fjórum höggum yfir pari eftir fjórar holur. Henni tókst að krækja sér í tvo fugla á tveimur síðustu holunum á fyrri níu holunum sem hún lék á þremur höggum yfir pari.
Ólafía fékk svo þrjá skolla á fyrstu þremur holunum á seinni níu en fékk fugl á síðustu holunni eftir að hafa spilað fjórar holur í röð á parinu.
Caroline Hedwall frá Svíþjóð, Lydia Ko frá Nýja-Sjálandi, In-Kyung Kim frá Suður-Kóreu og Jessica Korda frá Bandaríkjunum eru efstar en þær léku allar hringinn á 68 höggum, fjórum undir pari.