Guðmundur þrettándi í Svíþjóð

Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Ófeigur Lýðsson

Guðmundur Ágúst Kristjánsson hafnaði í þrettánda sæti á Holtsmark Open í Svíþjóð í dag. Mótið er hluti af Nordic Tour-mótaröðinni í golfi. Guðmundur lék afar stöðugt golf og spilaði alla hringina á 70 höggum. 

Guðmundur lék því samanlagt á sex höggum undir pari, en hann hefur verið á meðal fimmtán efstu kylfinga þrjú mót í röð í mótaröðinni. Hann fékk fimm fugla, þrjá skolla og tíu pör í dag. 

Jacob Glennemo frá Svíþjóð vann öruggan sigur. Hann lék hringina þrjá á samanlagt 201 höggi, fimmtán höggum undir pari. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert