Ólafía í eldlínunni á Spáni

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal keppenda á Estrella Damm Ladies Open-mótinu í golfi sem hefst á Spáni á fimmtudaginn.

Mótið er í LET-Evrópumótaröðinni en Ólafía er með keppnisrétt í tveimur mótaröðum, LPGA í Bandaríkjunum og LET Evrópumótaröðinni.

Ólafía hefur keppt á þremur mótum á tímabilinu 2018 í LET-Evrópumótaröðinni. Hún keppti síðast í byrjun september á Lacoste Ladies Open de France í LET-Evrópumótaröðinni. Þar endaði Ólafía Þórunn í 11. sæti.

Ólafía er í 76. sæti á stigalista LET-mótaraðarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert