„Þetta var frábærlega spilað hjá þeim. Þeir voru miklu betri en við. Við áttum eiginlega ekki séns,“ sagði Einar Hólmgeirsson aðstoðarþjálfari ÍR meðal annars við mbl.is á Ásvöllum í kvöld þar sem ÍR tapaði 38:23 fyrir Haukum í Olís-deild karla.
Einar sagði ennfremur að ótrúlegt hafi verið að ÍR hafi ekki verið nema fjórum mörkum undir að loknum fyrri hálfleik.
Viðtalið við Einar má sjá á meðfylgjandi myndskeiði.