Karen átti stórleik

Karen Knútsdóttir lék afar vel með Nice í sigurleiknum á …
Karen Knútsdóttir lék afar vel með Nice í sigurleiknum á Nantes í kvöld. mbl.is/Ómar

Karen Knútsdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins í handknattleik, átti stórleik þegar Nice vann Nantes í frönsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld á útivelli, 20:17. Karen, sem átti 26 ára afmæli í vikunni, var allt í öllu í liði Nice og skorað m.a. átta af mörkum liðsins sem situr nú í 5. sæti deildarinnar. 

Arna Sif Pálsdóttir, einnig landsliðskona, skoraði eitt af mörkum Nice að þessu sinni. Staðan var jöfn í hálfleik, 10:10. Fljótlega í síðari hálfleik tóku leikmenn Nice forystu í leiknum og voru tveimur til þremur mörkum yfir allt til leiksloka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert