Síðan í gærkvöldi hefur fátt verið meira rætt í íþróttaheiminum hér á landi en ákvörðun HSÍ um að úrskurða Gróttu 10:0-sigur á Stjörnunni í öðrum undanúrslitaleik liðanna þar sem Stjarnan tefldi fram ólöglegum leikmanni.
Fréttirnar hafa vakið mikla athygli á samskiptamiðlum og deilda margir um hvort úrskurðurinn hafi verið of þungur eða eftir bókinni. Fjölmiðlamaðurinn Máni Pétursson, stuðningsmaður Stjörnunnar, var til að mynda alls ekki sáttur en brot af umræðunni má sjá hér að neðan.
@BjoggiGustavs Nei skammirnar eru vist Gróttu. En ekki Hsi. Þetta er bara svo skammarlegt. Grótta er lúsera klúbbur. Sést vel á þessu.
— Máni Pétursson (@Manipeturs) April 24, 2017
Það kæmi mér ekki á óvart ef Stjarnan myndi vinna þetta einvígi eftir þessa kæru #handbolti #olisdeildin
— Íris Kristín Smith (@Irisksmith) April 24, 2017
@larusgunnars Ekki fyrst og fremst heldur eingöngu klúður Stjörnunnar. Væri ekki handboltanum til framdráttar að Stjarnan kæmist upp með þetta.
— Guðmundur Sigfússon (@Gummi_10) April 24, 2017
Get ekki sagt að ég sé stoltur af mínum fyrrum klúbb Gróttu.Hefði sjálfur ekki viljað vinna svona. En stjarnan klikkaði illa #olísdeildin
— Atli Steinþorsson (@atlirunar66) April 25, 2017
Bara til að hafa það á hreinu! Grótta gerði ekkert rangt. Stjarnan gerði mistökin og reglur eru reglur. Hættið þessu rugli. #olisdeildin
— Logi Geirsson (@logigeirsson) April 25, 2017
@sonurjons @HjaltiHreinsson @birkirorn @kjartansson4 Reglugerðin er mjög skýr. Það er ekkert við þessu að gera. HSÍ er bara að fara eftir reglum sem er gott. Grótta gerir það líka. Eina.
— Guðjón Guðmundsson (@gaupinn) April 25, 2017