Gísli Þorgeir Kristjánsson, hinn 17 ára leikmaður FH sem sló í gegn í úrslitakeppninni um Íslandsmeistaratitilinn í handknattleik í vor, er undir smásjá þýska stórliðsins Kiel sem Alfreð Gíslason þjálfar.
Kristján Arason, faðir Gísla, staðfestir þetta í samtali við Vísi og segir að þeir feðgar viti um áhuga Kiel þó ekkert hafi verið samið ennþá.
Kristján segir ennfremur að Gísli muni spila í efstu deild hér á landi næsta vetur en það kæmi ekki í veg fyrir að hann semji við erlent félag í sumar.