Guðjón Valur í liði ársins (myndskeið)

Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson fagna Þýskalandstitlinum.
Guðjón Valur Sigurðsson og Alexander Petersson fagna Þýskalandstitlinum. Ljósmynd/Instagram-síða Guðjóns Vals

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður Rhein-Neckar Löwen í efstu deild þýska handboltans, var valinn í úrvalslið deildarinnar fyrir tímabilið 2017-2018.

Ásamt Guðjóni Val voru reynsluboltarnir í Flensburg, þeir Mattias Andersson og Holger Glandorf, einnig valdir í liðið sem sjá má í heild sinni sjá hér að neðan.

Markvörður:
Mattias Andersson - Flensburg

Útileikmenn:

Guðjón Valur Sigurðsosn - Rhein-Neckar Löwen
Jannik Kohlbacher - HSG Wetzlar
Johannes Sellin - Melsungen
Philipp Weber - Wetzlar
Petar Nenadic - Füchse Berlin
Holger Glandorf - Flensburg

Myndskeið með tilþrifum leikmannanna sjö. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert