Arnór Þór var öflugur

Arnór Þór Gunnarsson.
Arnór Þór Gunnarsson. AFP

Landsliðsmaðurinn Arnór Þór Gunnarsson var í stuði með liði Bergischer í þýsku B-deildinni í handknattleik í kvöld.

Hornamaðurinn knái skoraði 9 mörk í sigri liðsins gegn Hamm á útivelli, 27:21. Bergischer sem féll úr 1. deildinni á síðustu leiktíð hefur byrjað tímabilið í B-deildinni vel en liðið hefur unnið alla sex leiki sína. Fannar Friðgeirsson skoraði 2 af mörkum Hamm.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert