Sjö mörk Bjarka hjálpuðu Refunum áfram

Bjarki Már Elísson átti góðan dag.
Bjarki Már Elísson átti góðan dag. mbl.is/Árni Sæberg

Bjarki Már Elísson og liðsfélagar hans í þýska liðinu Füchse Berlín eru komnir áfram í átta liða úrslit EHF-bikarsins í handbolta eftir 34:25-sigur á Saint-Raphaël frá Frakklandi í næstsíðustu umferð riðlakeppninnar í kvöld.

Bjarki skoraði sjö mörk í leiknum og var markahæstur í sínu liði. Berlín mætir Lugi frá Svíþjóð í síðasta leik sínum í riðlakeppninni eftir viku, en sá leikur skiptir litlu máli, enda bæði Berlín og Saint-Raphaël komin áfram. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert