Ásgeir Örn á leið í Hauka?

Ásgeir Örn Hallgrímsson er á leið í Hauka.
Ásgeir Örn Hallgrímsson er á leið í Hauka. mbl.is/Kristinn Magnússon

Handknattleikskappinn Ásgeir Örn Hallgrímsson er á leið til Hauka en það er Rúv.is sem greinir frá þessu í dag. Handknattleiksdeild Hauka hefur boðað til blaðamannafundar í dag og greinir Rúv frá því að Ásgeir Örn verði kynntur til leiks hjá félaginu.

Ásgeir Örn á að baki yfir 250 landsleiki fyrir Ísland og þá hefur hann spilað sem atvinnumaður erlendis frá árinu 2005 þegar hann samdi við Lemgo í Þýskalandi. Ásgeir hefur meðal annars spilað fyrir Faaborg, Hannover, PSG og Nimes á ferlinum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert