West Wien á toppinn í Austurríki

Guðmundur Hólmar Helgason var atvkæðamikill í liði West Wien í …
Guðmundur Hólmar Helgason var atvkæðamikill í liði West Wien í dag og skoraði fjögur mörk. Ljósmynd/Handball-westwien.at

Guðmundur Hólmar Helgason skoraði fjögur mörk og Viggó Kristjánsson skoraði tvö þegar West Wien gerði jafntefli á heimavelli gegn Bregenz í austurrísku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag, 21:21.

Bregenz leiddi í hálfleik, 12:11 en West Wien tókst að vinna upp þann mun og gott betur því staðan var 21:19 fyrir West Wien þegar rúmlega mínútu var eftir af leiknum. Bregenz skoraði hins vegar síðustu tvo mörk leiksins og það síðasta kom þegar fimm sekúndur voru eftir af leiknum.

Ólafur Bjarki Ragnarsson var ekki í leikmannahópi West Wien í dag en liðið er í efsta sæti deildarinnar með 5 stig eftir fyrstu fjórar umferðirnar. Hannes Jón Jónsson er þjálfari West Wien.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert